Gervigreind og nýtt landslag á UT markaði
Spennandi veffundur 4. júní í samstarfi við IBM um áhrif uppgangs AI-risanna á verð, framboð og afhendingar á tæknibúnaði um allan heim.

Gríðarleg uppbygging AI-innviða hjá stærstu tæknifyrirtækjum heims hefur sett aukinn þrýsting á framleiðslu, aðfangakeðjur og framboð á búnaði með þeim afleiðingum að verð, afhendingartímar og aðgengi að tæknilausnum hafa tekið miklum breytingum á stuttum tíma.
Á þessum stutta veffundi förum við yfir stöðuna á markaðnum í dag, hvernig uppgangur AI-risanna er að móta þróunina og hvaða áhrif það hefur á fyrirtæki þegar kemur að innkaupum, innviðauppbyggingu og langtímaáætlunum.
Eru minniseiningar orðnar verðmætari en gull?
Eru í alvörunni yfir 100% verðhækkanir á gagnageymslum og minniseiningum fram undan?
Mun verðlagið nokkurn tímann fara aftur niður?
Þegar reynslan talar
Fyrirlesari er Julien Demeulenaere, EMEA sölustjóri fyrir IBM Storage og Mainframe lausnir. Julien býr yfir meira en 18 ára reynslu á sviði innviða og hefur sérhæft sig í segulbandalausnum síðastliðin 10 ár.